Flugufrelsarinn

sigur ros



hamagangur, ég þusti niður að læknum, bjargvættur.
ég gerði skip tilbúið og fór með litla bæn því ég var hræddur.
sólin skein og lækurinn seytlaði.
sóley - sóley flugurnar drepast.

en í dag á ég að bjarga sem flestum flugum.
með spotta í skip ég er með í hvorri hendi - ákveðinn.
ég kasta þeim út í hylinn og reyni að hala flugurnar inn áður en seiðin
ná til þar sem þær berjast við strauminn og vatnið.
þannig líður dagurinn.
sjálfur kominn um borð, var farinn að berjast við bæjarlækinn
sem hafði þegar deytt svo margar.
ég næ ekki andanum og þyngist við hverja öldu.
mér vantar kraftaverk því ég er að drukkna syndir.
ég reyni að komast um borð.

ég dreg í land og bjarga því sjálfum mér aftur á bakkann.
á heitan stein ég legg mig og læt mig þorna aftur.
ég kasta mér út í hylinn og reyni að hala flugurnar inn áður en seiðin
ná til þeirra þar sem þær berjast við strauminn og vatnið.
gustur, allur rennblautur.
frakkur finnur hvernig báturinn er kominn og mesta straumnum
og landið smám saman nálgaðist.
hann er bæði um borð í sjó og landi bjargandi flugunum sem farast hér.
þó sér í lagi sjálfum sér.
eilíft stríð og hvergi friður.
en það verður einhver að fórna sér.
dagarnir eru langir.

관련 가사

가수 노래제목  
Sigur ros hoppípolla  
Sigur ros gobbledigook  
Sigur Ros Untitled  
sigur ros Svefn-G-Englar  
Sigur Ros Takk...  
Sigur ros heysátan  
Sigur ros illgresi  
Sigur Ros Saeglopur (Radio Edit)  
Sigur Ros Staralfur  
sigur ros Hjartað Hamast  




가사 수정 / 삭제

댓글목록

등록된 댓글이 없습니다.